Til baka

Sumarsmiðjur 2026

Sumarsmiðjur 2026

Lego smiðja
Amtsbókasafnið á Akureyri bíður krökkum á aldrinum 7- 12 ára að koma á safnið og nýta ímyndunaraflið í allskonar skemmtilegum smiðjum.
Smiðjurnar eru á milli klukkan 9 og 11 og er krökkunum frjálst að koma og fara að vild allt eftir áhuga og úthaldi.
 
Þann 16. júní ætlum við að byggja úr lego kubbum. Krakkarnir eru hvattir til þess að velja sér bók og byggja eitthvað upp úr bókinni. Geta verið atriði úr bókinni, persónur eða eitthvað annað sem þeim dettur í hug.
 
Smiðjurnar verða sem hér segir:
10. júní – Steina/krukku málun – Litum saman á krukkur og steina með posca pennum.
11. júní – Ræktunarsmiðja – Sáum í samfélagsgarðinn okkar og í pappa hólka sem krakkarnir fá að fara með heim.
12. júní – Barmmerki og bókamerki – Búum til barmmerki og bókamerki úr gömlum bókum.
15. júní – Spilamorgun – spilum saman skemmtilegu borðspilin sem bókasafnið á til útláns.
16. júní – Lego -Byggjum úr lego kubbum. Krakkarnir eru hvattir til þess að velja sér bók og byggja eitthvað upp úr bókinni. Geta verið atriði úr bókinni, persónur eða eitthvað annað sem þeim dettur í hug.
18. júní – Búðu til þína eigin bók - Krökkunum gefst kostur á að búa til sína eigin sögu og myndskreyta hana. Þeir sem vilja geta síðan gefið safninu bókina sína til útláns.
19. júní – Perlusmiðja - Perlum persónur úr barnabókum. Við munum svo strauja öll listaverkin og krakkarnir mega taka þau með sér heim.
 
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.
Hvenær
þriðjudagur, júní 16
Klukkan
09:00-11:00
Hvar
Amtsbókasafnið