Björn Steinar Sólbergsson upphafsmaður Sumartónleika í Akureyrarkirkju, leikur nú á hátíðinni í tilefni 40 ára afmælis hennar!
Björn Steinar stóð fyrir fyrstu Sumartónleikum í Akureyrarkirkju sumarið 1987. Hann hélt utan um hátíðina um árabil og mótaði hana. Afar hátíðlegt er því að hann skuli koma fram á Sumartónleikum í ár! Orgeltónlist hefur alla tíð átt sinn sess á hátíðinni, því eitt af markmiðum hátíðarinnar er að gestir fái að heyra í merku orgeli Akureyrarkirkju. Ekki verður amalegt að fá að heyra Björn Steinar leika á orgelið, en á efnisskrá eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Louis Vierne, Pál Ísólfsson, Jón Nordal og Báru Grímsdóttur, auk þess sem Björn Steinar frumflytur nýtt Afmælisfanfar eftir Þorvald Örn Davíðsson!
Í tilefni af afmælisári Sumartónleika í Akureyrarkirkju verður nýtt tónverk, sérstaklega pantað í afmælisgjöf til hátíðarinnar og tónleikagesta, frumflutt á hverjum tónleikum í sumar. En Sumartónleikar í Akureyrarkirkju fara fram kl. 17 alla sunnudaga í júlí.
Menningarsjóður Akureyrarbæjar, sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja hátíðina.
Viðburðadagatal Listasumars má finna á listasumar.is