Andrew J. Yang píanóleikari kemur fram á lokatónleikum 40 ára afmælishátíðar Sumartónleika í Akureyrarkirkju!
Tónleikarnir bera yfirskriftina Endurminning.
Andrew leikur verk eftir J. Brahms, F. Chopin, S. Rachmaninoff og M. Ravel, sem hverfast um endurminningar og nostalgíu. Einnig flytur hann eigin frumsamin píanóverk byggð á minnigum frá Patreksfjarðarárum sínum og ferðalögum. Á tónleikunum frumflytur Andrew fjórða tónverkið sem pantað var í afmælisgjöf til Sumartónleika og tónleikagesta, en það er úr smiðju Andrews sjálfs!
Með tónleikum Andrews lýkur 40. starfsári Sumartónleika í Akureyrarkirkju! Sumartónleikar þakka tónleikagestum, tónlistarfólki og aðstandendum kærlega fyrir samfylgd og stuðning gegnum árin fjörtíu og hlakka til næstu fjörutíu ára! Hittumst á lokatónleikum sumarsins og hlýðum á yndislega píanótónlist!
En Menningarsjóður Akureyrarbæjar, sóknarnefnd Akureyrarkirkju og Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.