Til baka

Sumarveisla Pastel - 10 ára afmæli í Sigurhæðum

Sumarveisla Pastel - 10 ára afmæli í Sigurhæðum

Sumarveisla Pastel - 10 ára afmælisveisla

Við fögnum 10 árum í Pastel og setjum upp svið undir reynivið Guðrúnar og Matthíasar suðurundir húsvegg Sigurhæða (eða ef veður heimtar þá inni í dagstofum).
Við bjóðum upp á drykki og snarl og góða stemningu.

Þessir úrvals myndlistamenn, skáld, tónlistarfólk og jafnvel fleiri úr röðum Pastel koma fram með eigið efni:

* Árni Friðriksson
* Ester Hilmarsdóttir
* Gerður Kristný
* Hildur Eir Bolladóttir
* Hlynur Hallsson
* Jónína Björg Helgadóttir
* Kári Tulinius
* Kristín Þóra
* Samúel Lúkas

Það er enginn aðgangseyrir en viðburðurinn er samfjármagnaður af Uppbyggingasjóði SSNE, Menningarsjóði Akureyrarbæjar, Akureyrarbæ, Ráðuneyti menningar, háskóla og nýsköpunar, Útgáfufélaginu, Flóru menningarhúsi og síðast en ekki síst framlagi Pastella sjálfra.

Verið öll velkomin!
Sjá verkin á www.pastel.is
@pastelrit

Hvenær
laugardagur, ágúst 1
Klukkan
13:00-15:00
Hvar
Sigurhæðir