Í tilefni Listasumars eru komnar upp áhugaverðar og skemmtilegar verur í Listagilinu. Verurnar eru hvatning fyrir yngri kynslóðina að henda rusli á réttan stað. Ruslaverurnar eru hugarfóstur myndlistarkonunnar Jónborgar Sigurðardóttur, Jonnu.
Ruslaverurnar eru þrjár, staðsettar í Listagilinu, Kaupvangsstræti og við andarpollinn.
Verkefnið nýtur stuðings Listasumars 2026
Viðburðadagatal Listasumars má finna á listasumar.is