Til baka

Svavar Knútur og Kristjana Stefáns

Svavar Knútur og Kristjana Stefáns

Tónleikar

Kristjana Stefáns og Svavar Knútur munu geysast um landið í elghressu peppi í júlí næstkomandi á sinni árlegu sumartónleikaferð undir yfirskriftinni: „Með Faðmlög í farteskinu“. 

23. júlí næstkomandi munu Kristjana og Svavar Knútur heimsækja Akureyri og gera sitt besta til að bæta fyrir þyngsl vormánaðanna sem skriðu hjá í móki samkomubanns með húmor og hlýju, krúttlegum kvöldsöngvum, angurværum Abbalögum og sígildumsöngperlum á hinum goðsagnakennda Græna Hatti. Þá munu sagðar sögur, lesin ljóð og klassísk íslensk kvöldvökustemmning höfð í hávegum. Það verður stutt í hláturinn og líka í tárin, enda víða komið við í lystigarði mannlegrar tilvistar.

Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Nú ferðast þau um landið þvert og endilangt með splunkunýja dúettaplötu í farteskinu, en hún ber nafnið „Faðmlög“.

Hvenær
fimmtudagur, júlí 23
Klukkan
21:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Nánari upplýsingar