Til baka

Svavar Knútur og Kristjana Stefáns.

Svavar Knútur og Kristjana Stefáns.

 
Svavar Knútur
 
Hinir söngelsku vinir, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur, munu fagna sumri með tvennum tónleikum í júlí. Það er búið að vera mikið um að vera hjá þeim sitt í hvoru lagi og hafa þau ekki getað haldið tónleika saman í tvö ár, en nú er komið að því að bæta úr því og kæta velunnara þessa músíkalska pars. Hér er því um að ræða kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa sakna þess að mæta á þessa rómuðu dúettatónleika.
 
Kristjana og Svavar Knútur hafa undanfarinn áratug vakið verðskuldaða athygli fyrir stórskemmtileg dúettakvöld. Þar ríkir jafnt gleði sem angurværð ásamt dassi af glensi og bera þau vinirnir á borð fjölbreytta dagskrá dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly Parton, með viðkomu á grænum grundum sígildra íslenskra söngperla og neonlitaðra 80’s slagara, auk frumsaminna laga og hinna ýmsu gleði- og tregabomba, ljóðalestri og gamansagna.
 
Árið 2020 fylgdu þau plötunni Glæðum eftir með nýrri plötu, sem bar nafnið Faðmlög. Platan, sem var tekin upp á tónleikum, hefur hlotið gríðargóðar viðtökur áheyrenda þeirra Kristjönu og Svavars og inniheldur mörg af þeirra eftirlætis lögum, bæði íslenskum og erlendum.
 
Tónleikarnir í sumar verða annars vegar í Iðnó í Reykjavík laugardaginn 22. júlí og á Græna Hattinum á Akureyri fimmtudaginn 27. júlí. Þeir hefjast stundvíslega kl. 20.00 og kostar miðinn kr. 4.900
 
 
 
Hvenær
fimmtudagur, júlí 27
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4900