Til baka

Svavar Knútur - Sérstakur gestur kanadíska söngvaskáldið Adyn Townes

Svavar Knútur - Sérstakur gestur kanadíska söngvaskáldið Adyn Townes

Svavar Kútur hefur skapað sér sess meðal fremstu söngvara og lagahöfunda Íslands

Svavar Knútur söngvaskáld hefur undanfarin ár skapað sér sess meðal fremstu söngvara og lagahöfunda Íslands. Með einlægni og einfaldleika að vopni hefur Svavar Knútur náð að skapa sér sérstöðu jafnt fyrir frumsamin lög sín og túlkun á sígildum íslenskum sönglögum. Svavar Knútur er þekktur fyrir að blanda saman húmor og alvarlegum málefnum, að draga áhorfendur sína gegnum hláturrokur og táradali, með kærleikann og gleðina sem endastöð.

Dagskrá tónleikanna verður sígild blanda af frumsömdu efni úr smiðju Svavars Knúts og eftirlætis sönglaga úr sígildri söngbók Íslendinga.

Hlekkir á youtube - Svavar: https://www.youtube.com/watch?v=ogFZeNRpzT4&ab_channel=SvavarKnutur

Youtube - Adyn Townes: https://youtu.be/MyACaNnOnjg?si=gCyd5qI13-QUdg3w

Hvenær
fimmtudagur, október 26
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3000