Sycamore Tree / COLORS / Útgáfutónleikar / Græni Hatturinn / 26. Nóvember
Sycamore Tree munu fagna útgáfu plötunnar COLORS sem kom út þann 7.október með glæsilegum útgáfutónleikum fyrir Norðlendinga á Græna Hattinum 26.nóvember. Með þeim Ágústu Evu og Gunna Hilmars verður þeirra besta fólk ásamt strengjasveit þar sem platan COLORS verður spiluð í heild sinni. Platan hefur fengið mikið lof. Að auki munu þau spila mörg af sínum þekktustu lögum. Kvöldstund með Ágústu Evu og Gunna Hilmars er ósvikin gæðastund en þetta kvöld verður sérstakt bæði fyrir þau og áheyrendur á þessum fallega stað sem passar afar vel við hjlóðheim COLORS. Það er þeim sönn ánægja að snúa aftur á Græna Hattinn þar sem þau hafa átt ógleymanleg kvöld nú í nokkur skipti.
Verð 4.900