Til baka

Sýning á lokaverkefnum nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA 2026

Sýning á lokaverkefnum nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA 2026

Er þetta tíunda árið sem sýning er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í náminu á listnáms- og hönnunarbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og er þetta tíunda árið sem sýning er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Samhliða öðru námi til stúdentsprófs fá nemendur eina önn til að vinna lokaverkefni á sínu sérsviði. Nemendur vinna sjálfstætt að því að útfæra eigin hugmyndir í þá miðla sem þau kjósa, allt frá fyrstu kveikju að lokaútfærslu. Þau þróa og móta verk sitt með rannsóknar- og tilraunavinnu og eiga í stöðugu samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og aðra nemendur í sköpunarferlinu. Þau gera grein fyrir þeim ákvörðunum sem eru teknar við þróun verksins og í undirbúningi sýningarinnar með tilliti til faglegrar þekkingar. Þetta er síðasta verkefni nemenda á brautinni áður en þau feta sig út í hinn stóra heim sjónlista

Hvenær
9. - 17. maí
Klukkan
12:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri