Til baka

Systur

Systur

Systur í fyrsta skipti á Græna hattinum
Systur kynna Dusty Road
Hljómsveitin Systur verða á ferðinni um Ísland í lok sumars og mæta á Græna Hattinn 24. ágúst nk. Sigga, Beta og Elín hafa unnið að lagasmíðum í sumar og senda frá sér sína fyrstu smáskífu, Dusty Road í ágústlok. Í leiðinni munu Systur kynna frumsamið efni sem kemur út á væntanlegri plötu á næsta ári. Systur komu sáu og sigruðu í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr á þessu ári þegar Lay Low bað þær um að flytja lagið sitt, Með hækkandi sól. Í framhaldinu ákváðu þær að vinna saman að plötu í þeirri tónlistarstefnu. Fólk má því búast við þjóðlagaskotnu efni frá þeim með tengingum við bandaríska sveitatónlist sem hefur haft áhrif á lagasmíðar þeirra í gegnum árin.
Hvenær
miðvikudagur, ágúst 24
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3900