TÁR í Skógarböðunum
Hljómsveitin TÁR spilar í Skógarböðunum
Hljómsveitin TÁR sem er skipuð þeim Elínu Ey og Zöe Ruth Erwin mun spila fyrir gesti Skógarbaðanna í tilefni af Hinsegin hátíðinni á Norðurlandi eystra.
Alt-folk dúóið TÁR, Elín Ey og Zöe Ruth Erwin, flytja nokkur lög fyrir gesti Skógarbaðanna á fimmtudaginn 18. júní kl. 20:30.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra. Verið hjartanlega velkomin.
Upplýsingar um aðgangseyri hjá Skógarböðunum má finna á www.forestlagoon.is