Til baka

Teiknisamkeppni fyrir káta krakka

Teiknisamkeppni fyrir káta krakka

Teiknisamkeppni fyrir kátir krakka á öllum aldri. Vegleg verðlaun í boði.

Stjórnsýslusvið Akureyrarbæjar efnir til teiknisamkeppni í tilefni barnamenningarhátíðarinnar á Akureyri. Kátir krakkar á öllum aldri eru hvattir til þess að taka þátt.

Þemað er frjálst en þarf að tengjast Akureyri. T.d hvað þykir þér skemmtilegast að gera á Akureyri? Hvernig er ævintýralegur dagur á Akureyri?

Veitt verða verðlaun fyrir nokkrar fallegar, frumlegar og fjölbreyttar myndir að mati dómnefndar. Myndunum er hægt að skila á A4 blaði til og með 21. október í póstkassa ráðhússins á Akureyri, Geislagötu 9.

Með myndinni þarf að koma fram upplýsingar um nafn teiknara, aldur, lýsing myndefnis og farsímanúmer eða netfang forráðamanns. Krakkar sem ekki hafa tök á því að skila teikningunum sínum í póstkassann mega senda mynd af teikningunni í tölvupósti á thjonustuver@akureyri.is. Tilvalið fyrir þátttakendur búsetta í Hrísey og Grímsey.

Myndirnar sem berast í keppnina verða ekki sendar til baka að keppni lokinni heldur verða þær til sýnis upp á vegg í þjónustuveri Akureyrarbæjar sem staðsett er á 1. hæð í ráðhúsinu dagana 26. – 30. október. Haft verður samband við vinningshafa föstudaginn 23. október.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum:
- 2 miðar á leiksýninguna Bendikt Búálfur hjá Leikfélagi Akureyri
- 2 x 5000 kr gjafabréf á Glerártorg
- 2 x Bíómiði í Borgarbíó
- Sjálflýsandi sundpoki frá Nova
...og svo margt margt fleira!

Láttu ljós þitt skína og taktu þátt!

Taktu endilega mynd af teikningunni og deildu henni með fleirum á Facebook eða Instagram #barnamenningak

Ábyrgðaraðili er Tinna Stefánsdóttir verkefnastjóri, tinnas@akureyri.is


Viðburður á Facebook HÉR


Viðburðurinn er haldin í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri sem fer fram í október og nýtur stuðnings Akureyrarbæjar.

Hvenær
1. - 21. október
Hvar
Akureyri
Nánari upplýsingar

Ekkert þátttökugjald.

Lokadagur þátttöku er til og með 21. október í póstkassa ráðhússins eða á netfangið thjonustuver@akureyri.is