Til baka

The Vintage Caravan

The Vintage Caravan

Hljómsveitin Vintage Caravan á Græna hattinum. Blóðmör hitar upp.

The Vintage Caravan spila á Græna Hattinum 15. Júlí næstkomandi! Hljómsveitin er að spila á mörgum stærstu rokk hátíðum í Evrópu í sumar, þar á meðal Graspop og Hellfest. Fimmta breiðskífa sveitarinnar, “Monuments” var mjög vel tekið og lenti meðal annars ofarlega á vinsældarlistum í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Sviss, einnig var hún tilnefnd til þriggja verðlauna á Íslensku Tónlistarverðlaununum. The Vintage Caravan fluttu nýverið Lifun í heild sinni í Eldborg með eftirlifandi meðlimum Trúbrots og var afar vel tekið í þá hljómleika.
Ekki missa af þessu tækifæri til að sjá eitt öflugasta tónleikaband landsins!


Hljómsveitin Blóðmör sem sigraði Músíktilraunir 2019 mun sjá um upphitun

Hvenær
föstudagur, júlí 15
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3990