Til baka

Þeistareykjabunga. Gönguskíðaferð

Þeistareykjabunga. Gönguskíðaferð

Gengið á skíðum um Þeistareykjasvæðið í vetrarbúningi.

Þeistareykjabunga. Gönguskíðaferð skidiskidiskidi

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Sigurgeir Sigurðsson.
Ekið að svæðinu við Þeistareykjaskálann þar sem gangan hefst. Þeistareykjabunga er ein stærsta dyngja landsins og eru upptök hennar í Stóravíti. Gengið verður upp í Bóndhólsskarð og að Litlavíti sem er mjög sérstakt og áfram að Stóravíti. Síðan er gengið á hæsta punkt Þeistareykjabungu, þaðan sem víðáttumikil hraun hafa runnið og víðsýnt er um svæðið. Vegalengd um 15 km. Gönguhækkun 200 m.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

Hvenær
laugardagur, apríl 9
Klukkan
08:00-16:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar, Strandgata 23.
Verð
2.000 kr./3.500 kr.