Til baka

Þínar bestu venjur 2026

Þínar bestu venjur 2026

Gjaldfrjáls vinnustofa frá Dale Carnegie um venjur. Öll velkomin!

Að líða vel og ná árangri í starfi, námi eða í einkalífinu byggist á góðum venjum. Umhverfi okkar breytist stöðugt sem þýðir að við erum sífellt í nýjum aðstæðum og þá er snjallt að skoða hvaða venjur við höfum í dag og hvort það sé eitthvað sem við viljum venja okkur af og hvort við viljum taka upp nýjar venjur árið 2026?

Dale Carnegie í samvinnu við bókasöfn á Íslandi býður upp á ókeypis vinnustofur sem byggðar eru á metsölu bókunum Vinsældir og áhrif og Lífsgleði njóttu. Fólki gefst kostur á að heyra sögur af fólki sem hafa gert skemmtilega hluti og hvaða venjur þau hafa notað og í framhaldi að skoða sínar venjur og drauma fyrir næsta ár.

Vinnustofurnar eru léttar og skemmtilegar, verða í 60 mínútur og eru í boði á nokkrum bókasöfnum og ætlaðar öllum 15 ára og eldri. Allir sem koma fá eintak af Gullnu bók Dale Carnegie.

Valfrjáls skráning á www.dale.is/vinnustofur

Nánari upplýsingar gefur:

Jón Jósafat Björnsson – hann/he
Framkvæmdastjóri / CEO
555 7080 / 864 5116
Dale Carnegie
www.dale.is

Hvenær
miðvikudagur, febrúar 11
Klukkan
17:00-19:00
Hvar
Amtsbókasafnið á Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald