Til baka

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní 2026

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní 2026

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní skipar háan sess í hugum Akureyringa sem og allra landsmanna

Gleðilega Þjóðhátíð!

Hér fyrir neðan er dagskrá hátíðarinnar 17. júní 2026 (dagskráin er í vinnslu).

Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá hátíðarsvæðinu.

Hæ hó jibbí jei!
Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar leggur af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og heldur suður í Lystigarð þar sem formleg hátíðarhöld fara fram. Mætum öll í skrúðgönguna!

Blómabíll Akureyrar
Blómabíllinn leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11.00, keyrir í gegnum íbúðahverfin, niður Listagilið, eftir Strandgötunni og víðar þar sem ómur berst frá palli bílsins með viðeigandi 17. júní lögum. Hlustum eftir lögunum og vinkum blómabílnum okkar. Akstursleið blómabílsins er að finna HÉR!

Hátíðardagskrá í Lystigarðinum
13.00-14.00

  • Fánahylling
  • Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur
  • Bænagjörð og blessun: Jóhanna Gísladóttir, prestur í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli
  • Kór eldirborgara undir stjórn Petreu Björk Pálsdóttur
  • Fjallkonan, Anna María Antonsdóttir nýstúdent frá MA
  • Ávarp bæjarstjóra: Berglind Ósk Guðmundsdóttir

Fjölskylduskemmtun í Lystigarðinum
14.00-17.00

  • 13.45 Villi Vandræðaskáld
  • 14.10 Dansatriði frá Steps Dancecenter
  • 14.20 Mahaut Matharel syngur við undirleik Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur  
  • 14.45 Dansatriði frá DSA Listdansskóla Akureyrar
  • 14.55 Karólína Orradóttir syngur við undirleik Hallgríms Jónasar Ómarssonar
  • 15.20 Jónsi og Erna Hrönn taka lagið
  • 15.40 Hvolpasveitin

Afþreying á MA-túni og víðar
13.30-17.00

  • Hoppukastalar
  • Andlitsmálning kl. 14.00 - 16.00
  • Frisbígolf með Frisbígolffélagi Akureyrar í Stefánslundi norðan við MA
  • Götukörfubolti með Körfuknattleiksdeild Þórs við íþróttahús MA
  • Pokavarp á MA túninu
  • Skotfimi með laserbyssum með skotfimifélagi Akureyrar á MA túninu vestan við heimavistina
  • Sölutjald frá Skátunum
  • Skátatívolí
  • Matarvagnar/sala (Silli Kokkur, Don Donuts, Foks Food, Happy Pancakes og Taílenskur matur)
  • Sigling með Húna II kl. 16.30. Siglt er frá Fiskihöfninni norðan við ÚA, beint neðan við Hagkaup. Siglingin er 45 mínútna löng. Bætt verður við annarri siglingu kl. 17.15 ef þörf verður á. 

     

Fögnum þjóðhátíð saman! Fjölmennum í skrúðgönguna!

Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur.

 

Allt hátíðarsvæðið

Stærri mynd má nálgast HÉR

 

Helstu bílastæði við hátíðarsvæði.

Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá hátíðarsvæðinu.

  • Bílastæði við Kaupvang 1000m
  • Bílastæði við Berjaya Akureyri Hótel 730m
  • Bílastæði við Verkmenntaskólann á Akureyri 620m
  • Bílastæði neðan við Rósenborg 600m
  • Bílastæði við Sundlaug Akureyrar 530m
  • Bílastæði við Kjörbúðina 530m
  • Bílastæði við íþróttahöllina 400m
  • Bílastæði Menntaskólans á Akureyri við Eyrarlandsveg 310m
Hvenær
miðvikudagur, júní 17
Klukkan
11:00-17:00
Hvar
Lystigarður Akureyrar
Nánari upplýsingar

Bæjarbúar eru hvattir til að nota umhverfisvænar samgöngur að og frá hátíðarsvæðinu.