Til baka

Þórarinn Eldjárn á Skáld – Akureyrarvaka

Þórarinn Eldjárn á Skáld – Akureyrarvaka

Þórarinn Eldjárn les fyrir börn og fullorðna á Skáld Hótel

Á Akureyrarvöku verður Þórarinn Eldjárn gestur Skáld Hótels og býður gestum á tvær upplestrarstundir laugardaginn 29. ágúst.

Kl. 13:00 – Upplestur fyrir börn
Þórarinn býður yngri gestum í notalega og skemmtilega upplestrarstund þar sem orð, húmor og ímyndunarafl fá að njóta sín.

Kl. 16:30 – Upplestur fyrir fullorðna
Síðar um daginn tekur við upplestur fyrir fullorðna þar sem Þórarinn les úr verkum sínum.

Bókmenntastemningin nær yfir alla helgina á Skáld. Gestir geta meðal annars notið ljóða Þórarins með morgunverðinum og tekið með sér orð úr verkum hans heim.

Á Abba-labba-lá verða jafnframt þrír sérstakir kokteilar á Happy Hour-verði alla helgina, nefndir eftir ljóðum Þórarins: Startari, Núllþol og Lag.

Einnig verður boðið upp á sérstakan þriggja rétta Akureyrarvöku-matseðil á Abba-labba-lá.

Hvenær
laugardagur, ágúst 29
Klukkan
13:00-17:30
Hvar
Skáld Hótel Akureyri
Verð
frítt