Til baka

Þorgerðartónleikar

Þorgerðartónleikar

Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri

Þorgerðartónleikar verða haldnir þriðjudaginn 25. febrúar klukkan 20:00

Fram koma nemendur Tónlistarskólans á Akureyri sem eru í framhaldsnámi á hin ýmsu hljóðfæri og í söng.

Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikar helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.

Tónleikarnir verða í Hömrum í Hofi og aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum í Þorgerðarsjóð.

Allir hjartanlega velkomnir :)

Hvenær
þriðjudagur, febrúar 25
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri