Til baka

Þorvaldur Þorsteinsson - Lengi skal manninn reyna

Þorvaldur Þorsteinsson - Lengi skal manninn reyna

Opnun á sýningu

Þorvaldur Þorsteinsson
Yfirlitssýning
Lengi skal manninn reyna

Salir 01-05
29.08.20-17.01.21

Yfirlitssýning á verkum eftir Þorvald Þorsteinsson (1960-2013) verður opnuð 29. ágúst 2020. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri og Hafnarborgar í Hafnarfirði, en þar verður hún sett upp snemma árs 2021.

Þorvaldur var afkastamikill listamaður og kennari sem nýtti sér flesta miðla í listsköpun. Auk þess að fást við myndlist samdi hann skáldsögur, leikrit, ljóð og tónlist og varð landsþekktur fyrir Vasaleikhúsið sem flutt var í Ríkisútvarpinu 1991 og síðar sýnt í sjónvarpi. Skáldsaga hans, Skilaboðaskjóðan, sló einnig rækilega í gegn þegar hún kom út 1986 og var síðar færð í leikbúning og sýnd í Þjóðleikhúsinu sem söngleikur 1993. Fjórar bækur Þorvaldar um Blíðfinn hafa verið þýddar á fjölda tungumála og Borgarleikhúsið setti upp leikrit hans And Björk of Course 2002. Hann hélt margar einkasýningar, jafnt á Íslandi sem erlendis, og tók þátt í alþjóðlegum samsýningum víða um heim.

Þorvaldur hefði orðið sextugur þann 7. nóvember 2020. Af því tilefni efnir Listasafnið til málþings á fæðingardegi hans, þar sem fjallað verður um ævi hans og áhrif.

 Í tilefni af 158 ára afmæli Akureyrarbæjar og vegna Covid-19 verður Listasafnið opið til kl. 22 á opnunardaginn og enginn aðgangseyrir.

Hvenær
laugardagur, ágúst 29
Klukkan
12:00-22:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri / Akureyri Art Museum, Kaupvangsstræti, Akureyri
Nánari upplýsingar