Upplifðu Norðurland með einstökum tónum. Tónlistarhátíðin WindWorks í Norðri færir töfra blásturstónlistarinnar inn á heillandi söfn norðanlands (allt frá Akureyri til Húsavíkur, Dalvíkur og Svalbarðsstrandar). WindWorks í Norðri – þar sem hljómlist, menning og saga Íslands mætast. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er flautuleikarinn Pamela De Sensi. WindWorks er alþjóðleg tónlistarhátíð sem fagnar fjölbreytileika og nýsköpun í blásturstónlist. Markmið verkefnisins er að leiða saman hæfileikaríka tónlistarmenn, auðga menningarlífið og færa kraftmikla blásturskonserta nær fólkinu í einstöku umhverfi.