Til baka

Töfrar Tónakistunnar - skapandi tónlistarsmiðja fyrir börn

Töfrar Tónakistunnar - skapandi tónlistarsmiðja fyrir börn

Skemmtileg og skapandi tónlistarsmiðja fyrir börn á aldrinum 8-13 ára!

Tónakistan kynnir skemmtilega og skapandi tónlistarsmiðju fyrir börn á aldrinum 8-13 ára! Smiðjan verður haldin á Akureyri í 21.- 23. júlí n.k.

Í smiðjunni verða leikir, söngur, tónsmíðar og spuni. Námskeiðið hentar því öllum börnum sem hafa áhuga á tónlist!

Það er alls ekki skylda að æfa á hljóðfæri til að taka þátt en við mælum eindregið með því að þau sem æfa eða kunna á hljóðfæri taki hljóðfærið sitt með sér!

Lögð verður áhersla á sköpunargleði, sjálfstyrkingu og samvinnu í öruggu og hvetjandi umhverfi. Markmið smiðjunnar er að efla tónlistarþekkingu og vitund barna ásamt því að kynna þau fyrir nýjum og skemmtilegum hliðum tónlistar.

Tónakistan hélt sambærilega smiðju á Akureyri dagana 11.-12. apríl 2026 sem vakti mikla lukku. Því höfum við ákveðið að endurtaka leikinn í sumar!

Leiðbeinendur smiðjunnar eru Katrín Karítas Viðarsdóttir og Svava Rún Steingrímsdóttir. Báðar hafa þær starfað við tónlistarkennslu, hafa lokið menntun frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hafa sérhæft sig í skapandi vinnu með börnum.

Skráning fer fram hér:
8-10 ára: https://forms.gle/w92u6aDHL181rCLK7
11-13 ára: https://forms.gle/seJzM3GpW1QDkyd69

Hvenær
21. - 23. júlí
Klukkan
09:00-16:00
Hvar
Glerárkirkja
Verð
24.990kr.-