Tökum skrefið eru vikulegar göngur hjá Ferðafélagi Akureyrar á sunnudögum kl. 10 frá febrúar fram til nóvemberloka.
Lögð er áhersla á að halda gönguhraða þannig að allir geti fylgt hópnum og er viðmiðið að ganga 3-5 km. á einni klukkustund.
Kaffi eftir göngu.
Allir velkomnir - Frítt - Engin skráning.
Mæting við skrifstofu FFA, Strandgötu 23.