Til baka

TÓLF JÓLA-TÓNA KORTÉRIÐ - JÓN ÞORSTEINN

TÓLF JÓLA-TÓNA KORTÉRIÐ - JÓN ÞORSTEINN

Kortérslangir tónleikar - harmonikuverk eftir Sofiu Gubaidulinu og Jón Þorstein!
Síðasta TÓLF TÓNA KORTÉR ársins gengur senn í garð!
 
Kortérslangir tónleikar á Listasafninu á Akureyri
laugardaginn 6. desember
kl. 15,
endurteknir klukkan 16.
Aðgangur er ókeypis, aðgengi gott og öll velkomin!
 
Jón Þorsteinn Reynisson mun í aðventuhúminu, fyrir milligöngu harmoniku sinnar, leiða okkur um tónlistarheim Sofiu Gubaidulinu. Hún er eitt mesta tónskáld harmonikutónlistar fyrr og síðar. Gubaidulina fæddist árið 1931 en lést í mars síðastliðnum.
 
Því er við hæfi að heiðra minningu hennar með því að gefa henni lokaorðið á TÓLF TÓNA KORTÉRINU í ár. Jón Þorsteinn leggur einnig tónsmíðaorð í belg með frumflutningi nýs tónverks eftir sjálfan sig. Önnur eins efnisskrá dugir til að halda hvaða grýlu, hrekkjalóm eða jólaketti sem er fjarri okkur í aðdraganda jóla. Missið ekki af þessum einstöku aðventutónleikum!
 
Aðgangur að safninu er ókeypis meðan á TÓLF JÓLA-TÓNA KORTÉRINU stendur. Það er unun að hlusta saman á tónlist í kortér og skoða svo sýningar safnsins. Jafnvel með viðkomu á Ketilkaffi, ef hungur eða þorsti sverfa að.
 
Börn, öldungar og öll þar á milli eru velkomin á tónleikana.
 
Efnisskrá:
Fachwerk - S. Gubaidulina
De profundis - S. Gubaidulina
Nýtt tónverk ónefnt enn - Jón Þorsteinn Reynisson
 
TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ þakkar Sóknaráætlun Norðurlands Eystra, Akureyrarbæ, Tónskáldasjóði RÚV/STEFs og Menningarsjóði FÍH stuðninginn á árinu sem er að líða.
Hvenær
laugardagur, desember 6
Klukkan
16:00-16:15
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti 8-12
Verð
Ókeypis aðgangur - öll velkomin!