TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - ANDREA
Andrea Gylfadóttir frumflytur DRÓNSPUNA á selló, gítar og fiðlu!
DRÓNSPUNI eftir Andreu Gylfadóttur!
TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ
Laugardaginn 11. apríl
kl. 15:00 og aftur
kl. 16:00
á Listasafninu á Akureyri
í Listagilinu - Kaupvangsstræti 8-12
Kortérslangir tónleikar - ókeypis aðgangur!
Söngkonan, lagasmiðurinn og skáldið magnaða, hin eina sanna Andrea Gylfadóttir semur og spinnur á selló, gítar og fiðlu yfir drón og tónmynstur leikin af sellóaðstoðarkonu og forsprakka TÓLF TÓNA KORTÉRSINS, Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur.
Aðgengi er gott og öll velkomin!
Gaman er að skoða sýningar listasafnins í leiðinni. Hungur má seðja og þorsta má svala á Ketilkaffi á jarðhæð. Það stefnir í góðan laugardag á Listasafninu á Akureyri!
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ. Við þökkum kærlega fyrir okkur.