Til baka

Tólf tóna korterið - Andrea Gylfadóttir

Tólf tóna korterið - Andrea Gylfadóttir

Korterslangir tónleikar í Listasafninu á Akureyri. Klukkan 15 og aftur kl. 16.
DRÓNSPUNI eftir Andreu Gylfadóttur
TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ

Laugardaginn 11. apríl í Listasafninu á Akureyri
kl. 15:00 og aftur kl. 16:00
 
Kortérslangir tónleikar - ókeypis aðgangur.
 
Söngkonan, lagasmiðurinn og skáldið magnaða, hin eina sanna Andrea Gylfadóttir semur og spinnur á selló, gítar og fiðlu yfir drón og tónmynstur leikin af sellóaðstoðarkonu og forsprakka TÓLF TÓNA KORTÉRSINS, Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur.
 
Aðgengi er gott og öll velkomin!

Gaman er að skoða sýningar listasafnins í leiðinni. Hungur má seðja og þorsta má svala á Ketilkaffi á jarðhæð. Það stefnir í góðan laugardag á Listasafninu á Akureyri!
 
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ. 
Hvenær
laugardagur, apríl 11
Klukkan
15:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri