Til baka

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - DAGBJÖRT OG GILLIAN

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - DAGBJÖRT OG GILLIAN

Örtónleikar - tónverkið HOLLOWAY eftir Charles Ross frumflutt - fagott og óbó!

ÚTSYNNINGUR!

Er yfirskrift tónleika þeirra Dagbjartar Ingólfsdóttur og Gillian Haworth á TÓLF TÓNA KORTÉRINU.

Þær munu leika þar á fagott og óbó laugardaginn 2. nóvember
kl. 15:00-15:15
og aftur kl. 16:00-16:15.

Þær frumflytja verkið HOLLOWAY eftir Charles Ross, og leika einnig Sonatinu eftir André Jolivet.

Dagbjört býr og starfar á Akureyri, Charles Ross á Egilsstöðum, og Gillian í höfuðstaðnum - en hún bjó lengi á Reyðarfirði og starfaði við tónlist eystra. André Jolivet var tónskáld í Frakklandi á tuttugustu öld. Útsynningurinn færir okkur hressilegan tónlistargust úr ýmsum áttum!

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Aðgengi er mjög gott og tónleikar TÓLF TÓNA KORTÉRSINS henta öllum aldri.
Alltaf fjör á Listasafninu!

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ þakkar Sóknaráætlun Norðurlands eystra, Menningarsjóði Akureyrarbæjar og Tónskáldasjóði RÚV/STEF stuðninginn.

Hvenær
laugardagur, nóvember 2
Klukkan
16:00-16:15
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Ókeypis aðgangur - öll velkomin!