TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - DIMITRIOS
Kortérs tónleikar - Dimitrios frumflytur verk sitt Wonder Woman fyrir rafgítar!
Rafgítarleikarinn Dimitrios Theodoropoulos opnar TÓLF TÓNA KORTÉR ársins 2026!
Dimitrios frumflytur tónverkið Wonder Woman eftir sjálfan sig og spinnur yfir það á tvennum ör-tónleikum (kortérslöngum) á Listasafninu á Akureyri:
laugardaginn 14. mars
kl. 15:00
og kl. 16:00.
Verkið er tileinkað öllum konum, og alveg sérstaklega Adriönu!
Aðgangur er ókeypis,
aðgengi gott,
góð stemmning á safninu,
og öll velkomin stór, smá, innvígð, óinnvígð (ef það er til) og mitt á milli.
Tilvalið er að skoða sýningar listasafnsins í sömu ferð. Þá má koma við á Ketilkaffi á jarðhæð, svengi mann eða þyrsti í fleira en tón- og myndlist.
Þar er komin nokkuð pottþétt uppskrift að góðum laugardagseftirmiðdegi.
Dimitrios er búsettur á Akureyri og hefur lengi verið virkur í djasstónlistarsenu bæjarins, bæði með sólótónleikum og í samstarfi við ýmsa aðra. Dimitrios kennir á gítar við Tónlistarskólann á Akureyri og er forsprakki Baby Bop, en það er djasshópur sem hann stofnaði ásamt nemendum við tónlistarskólann.
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ. Við þökkum kærlega fyrir okkur, og hlökkum til að sjá ykkur!