Til baka

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - EYDÍS OG STEINA

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - EYDÍS OG STEINA

Víóla, selló, MIAMOR frumflutt!

MIAMOR!

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ heilsar að hausti.

Kortérslangir tónleikar á Listasafninu á Akureyri
laugardaginn 5. september
kl. 15:00
og aftur kl. 16:00

Aðgangur ókeypis og öll velkomin!

Eydís Úlfarsdóttir og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir leika á víólu og selló.
MIAMOR er kjarni efnisskrárinnar. Á tónleikunum kl. 15 frumflytur Eydís samnefnt einleiksverk fyrir víólu eftir Steinunni.
MIAMOR getur þýtt Gullnammi eða Ástin mín. MIAMOR og víólan eiga saman.
MIAMOR tekur með sér sönglagið "Amour pense que je dorme" frá XVI öld, eftir Pierre Sandrin, og sönglagið "Ástin heldur að ég sofi" frá XXI öld, eftir Steinunni. Það síðarnefnda er samið við þýðingu texta þess fyrrnefnda.
Lögin tvö verða hér flutt í nýrri útsetningu fyrir víólu og selló.

Eydís og Steinunn eru starfandi tónlistarkonur á Akureyri og kenna við Tónlistarskólann á Akureyri.

Aðgangur að listasafninu er ókeypis meðan á TÓLF TÓNA KORTÉRINU stendur og tónleikagestir geta skoðað sýningar safnsins. Ketilkaffi er opið þeim sem hungrar og þyrstir í mat og drykk. Laugardagur á listasafninu er góður laugardagur.

Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ. Við þökkum kærlega fyrir okkur.

Hvenær
laugardagur, september 5
Klukkan
15:00-15:15
Hvar
Listasafnið á Akureyri
Verð
Ókeypis aðgangur - öll velkomin!