Til baka

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - HJÖRLEIFUR

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - HJÖRLEIFUR

Hjörleifur frumflytur eigið tónverk fyrir slagverk og rafhljóð!
TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ
Kortérslangir tónleikar á Listasafninu á Akureyri
laugardaginn 7. nóvember
kl. 15:00
endurteknir kl. 16:00
 
Hjörleifur Örn Jónsson frumflytur tónverkið 7,83 fyrir slagverk og rafhljóð úr eigin smiðju!
Hjörleifur hefur leikið ýmsa tónlist með ýmsu fólki á ýmsum stöðum á ýmsum tímum. Hann býr og starfar sem tónlistarmaður og tónlistarskólastjóri á Akureyri.
 
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og aðgengi gott.
Einnig má skoða sýningar safnsins og staldra við á Ketilkaffi að vild. Góður laugardagur á Listasafninu!
Verið hjartanlega velkomin, ung, gömul, löt, hress og líka öll hin.
 
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ. Við þökkum fyrir okkur!
Hvenær
laugardagur, nóvember 7
Klukkan
16:00-16:15
Hvar
Listasafnið á Akureyri
Verð
Ókeypis aðgangur - öll velkomin!