TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - ÍTRÍÓ
Tvennir kortérs-tónleikar!
ÍTRÍÓ opnar okkur áður ókannaða harmonikuheima...
Tvennir kortérstónleikar á Listasafninu á laugardaginn
klukkan 15:00-15:15 og 16:00-16:15,
frítt inn, gott aðgengi og öll velkomin!
ÍTRÍÓ rannsakar hljóðheima harmonikanna óhikað - ekki missa af þeim!
Þau Jón Þorsteinn Reynisson, Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir og Jónas Ásgeir Ásgeirsson munu frumflytja verkið VOR eftir sjálf sig, og leika verk eftir ýmist Hafdísi Bjarndóttur eða Friðrik Margrétar-Guðmundsson.
TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ er gullið tækifæri fyrir alla aldurshópa - og okkur öll yfirleitt - til að uppgötva forvitnileg hljóð og Listasafnið okkar í senn!
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra, Menningarsjóður Akureyrar og Tónskáldasjóður RÚV og STEFs styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ. Kærar þakkir fyrir okkur!