TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ - MARGRÉT OG ERLA MIST
Margrét og Erla Mist syngja - Mater et Filia eftir Daníel Þorsteinsson frumflutt
Kortérslangir tónleikar á Listasafninu á Akureyri
laugardaginn 3. okt
kl. 15:00
endurteknir kl. 16:00
Mæðgurnar Margrét Árnadóttir og Erla Mist Magnúsdóttir syngja saman!
Flutt verða verkin:
Mater et Filia eftir Daníel Þorsteinsson - frumflutningur!
Erla eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð Stefáns frá Hvítadal og
Frostrósir eftir Freymóð Jóhannsson.
Aðgangur er ókeypis, aðgengi gott og öll hjartanlega velkomin - ung, gömul og öll þar á milli.
Gestir TÓLF TÓNA KORTÉRSINS geta skoðað sýningar safnsins í leiðinni og fengið sér eitthvað í svanginn á Ketilkaffi.
Njótum laugardagsins á listasafninu okkar!
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ. Bestu þakkir fyrir okkur!