Tónatrítl er hugljúf tónlistarstund ætluð börnum á aldrinum 0-3 ára og foreldrum þeirra. Um er að ræða 35 mínútna samverustund í söng, hreyfingu og dansi sem söngkonan og tónlistarkennarinn Ösp Eldjárn leiðir. Notast verður við íslenskar þulur og barnagælur sem og frumsamin lög og texta í bland við erlend, sem Ösp hefur þýtt og heimfært á íslenska vísu.
Viðburðurinn er hluti af Listasumri 2025