Til baka

Tónaútgáfan - Þó líði ár og öld

Tónaútgáfan - Þó líði ár og öld

Kl. 20.00-22.00 - Saga Tónaútgáfunnar rakin í tali og tónum.

Á tónleikunum “Tónaútgáfan. Þó líði ár og öld” er saga Tónaútgáfunnar rakin í tali og tónum. Um sönginn sjá þau Erna Hrönn, Magni Ásgeirs, Stebbi Jak, Stefán Elí og Summi Hvanndal. Hljómsveitina skipa Eyþór Ingi Jónsson á orgel og hljómborð, Haukur Pálmason á trommur, Kristján Edelstein á gítar, Magni Ásgeirs á gítar og Summi Hvanndal á bassa.

Pálmi Stefánsson stofnaði Tónabúðina á Akureyri árið 1966. Verslunin seldi hljóðfæri, hljómtæki og hljómplötur. Það reyndist erfitt að bjóða upp á íslenskar plötur í Tónabúðinni þar sem Sportvöru- og hljóðfæraverslun Akureyrar hafði gert einkasölusamninga við flesta íslenska útgefendur. Pálmi stofnaði því Tónaútgáfuna árið 1967 ásamt Jóni Ármannssyni. Saman ráku þeir Tónaútgáfuna í nokkur ár en síðar keypti Pálmi hlut Jóns í fyrirtækinu og rak það til ársins 1985.

Pálmi var á þessum tíma jafnframt hljómsveitarstjóri hljómsveitarinnar Póló sem naut mikilla vinsælda og fyrsta platan sem Tónaútgáfan gaf út var smáskífa með Póló og Bjarka.

Í kjölfarið fylgdu svo plötur með mörgum af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar og má þar nefna Björgvin Halldórsson, Ragnar Bjarnason, Flowers, Ævintýri, Örvar Kristjánsson, Geirmund Valtýsson og Hljómsveit Ingimars Eydal. Árið 1970 gaf Tónaútgáfan út fyrstu íslensku safnplötuna og bar hún nafnið Pop Festival ‘70. Tónaútgáfan gaf einnig út hina goðsagnakenndu plötu Lifun með hljómsveitinni Trúbrot árið 1971.

Kynnir á tónleikunum er Þorsteinn G. Gunnarsson.

Enginn aðgangseyrir er inn á tónleikana sem verða í Hamraborg og því mikilvægt að mæta tímalega til að tryggja sér sæti.


Viðburðurinn er styrktur af Menningarsjóði Akureyrar, Menningarhúsinu Hofi, Tónabúðinni, Kraftbílum, Viking Brugg og Niceair.

Hvenær
laugardagur, ágúst 27
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir - Takmarkaður sætafjöldi
Nánari upplýsingar

Facebooksíða Tónaútgáfunnar HÉR