Til baka

Tónleikar Hríseyjarkirkju

Tónleikar Hríseyjarkirkju

Óskar Magnússon og Ragnhildur D. Þórhallsdóttir flytja ljúfa tóna frá ýmsum löndum.

Óskar Magnússon og Ragnhildur D. Þórhallsdóttir flytja ljúfa tóna frá ýmsum löndum.

Óskar Magnússon gítarleikari lauk meistaragráðu árið 2020 frá San Francisco conservatory of music þar sem hann lærði hjá fran ska gítarleikaranum Judicael Perroy. Meðan á náminu stóð tók Óskar þátt í ýmsum gítarhátíðum og keppnum eins og Forum gui tar festival í Vínarborg, Florida guitar foundation í Miami og Gohar and Ovanes guitar competition Í Los Angeles, þar sem hann hlaut fyrstu verðlaun. Óskar byr nú a Íslandi þar sem hann starfar sem gítarkennari í Tónlistarskóla Árbæjar og Listaskóla Mosfellsbæjar. Óskar er að auki annar helmingurinn í Magma Guitar Duo ásamt Svani Vil bergssyni.

Ragnhildur D. Þórhallsdóttir sópran lauk burtfararprófi í söng frá söngskóla Sigurðar Demetz þar sem kennarar hennar voru Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir og Auður Gunnarsdóttir. Síðan þá hefur hún verið í söngtímum og sótt masterklassa m.a. hjá Laufeyju Helgu Geirsdóttur og Jóni Þorsteinssyni. Ragnhildur æfði tónlist undir handleiðslu og við undirleik Gerrits Schuil í mörg ár þar til hann lést í september 2019. Þau héldu tónleika saman 2017 í Seltjarnarneskirkju þar sem þó fluttu m.a. Liederkreis op. 39 eftir R. Schumann. Þau fluttu einnig saman Haugtussa eftir E.Grieg vorið 2019 á tónleikum í sömu kirkju. Ragnhildur syngur með Kammerkór Seltjarnarneskirkju og hefur sungið einsöng við ýmis tækifæri.

 

Hvenær
laugardagur, ágúst 15
Klukkan
16:00
Hvar
Hríseyjarkirkja
Verð
ISK 2000