Til baka

Tungudalsvatn í Fljótum

Tungudalsvatn í Fljótum

Náttúruperla sem ekki margir þekkja.

Brottför kl. 8 á einkabílum (jeppum, jepplingum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Una Þórey Sigurðardóttir
Ekið sem leið liggur yfir Lágheiði að bænum Lundi og beygt í vestur og farið eftir vegaslóða að Fljótaánni og ekið yfir hana ef ekki er of mikið í ánni. Síðan er gengið frá bústöðum við ána eftir kindagötum inn að vatninu sem er falin náttúruperla sem ekki margir þekkja. Þarna er mikið af fjallagrösum og berjum ef vel árar. Vegalengd um 10 km. Gönguhækkun 290 m.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

Skráning á www.ffa.is

Hvenær
laugardagur, ágúst 27
Klukkan
08:00-14:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
2.000 kr./3.500 kr.