Komið á tónleika í Drift EA á Akureyrarvöku!
Rapparinn ÚLFUR hefur verið að gera það gott undanfarið, síðast með útgáfu lagsins Fimm stjörnur ásamt Birgi Hákoni. Nú kemur ÚLFUR fram í heimabænum Akureyri í fyrsta sinn og það í húsakynnum Drift EA við Ráðhústorg! Lítið við og upplifið ferska tóna frá nýrri rödd rappheimsins.