Til baka

Una Torfa

Una Torfa

Una Torfa loksins á Græna Hattinum

Söngvaskáldið Una Torfa er fædd árið 2000. Una semur og spilar ljúfsár lög á íslensku um ástina og lífið og gaf hún út sína fyrstu plötu í júní árið 2022. Textar Unu eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum.

Á liðnu ári hefur Una komið víða fram, sem dæmi má nefna tónleika hennar í Iðnó á Iceland Airwaves, framkomur í Vikunni með Gísla Marteini við þrjú tilefni, tvenna tónleika á Akureyri og fjölmörg önnur gigg. Una Torfa hlaut Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína "Flækt og týnd og einmana".
Una kemur fram ásamt Haff Ceasetone gítarleikara.

Hvenær
fimmtudagur, apríl 13
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3500