Til baka

Una Torfa

Una Torfa

Una Torfa loksins aftur á Græna hattinum.
Una Torfa er lagasmiður og söngkona úr Vesturbænum sem semur lög á íslensku um ástir, höfnun, hjartasár og hamingju. Textarnir eru fjölbreyttir og taka á ýmsum hliðum margslunginna tilfinninga. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum. Laglínurnar dansa í takt við textana sem Una syngur á meðan hún spilar á gítar og píanó.
Una hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin í tvígang, sem söngkona ársins 2022 og flytjandi ársins 2024. Fyrsta plata Unu „Flækt og týnd og einmana“ hlaut Kraumsverðlaunin 2022 og platan „Sundurlaus samtöl“ var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna og var valin poppplata ársins 2024 af Morgunblaðinu.
 
Una stígur á svið ásamt unnusta sínum og gítarleikaranum Hafsteini Þráinssyni. Saman munu þau skapa nána og heillandi stemningu.
 
Hvenær
föstudagur, febrúar 20
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni Hatturinn
Verð
6990