Til baka

Undraferð um Laufás - Bannað fullorðnum / Fyrri ferð

Undraferð um Laufás - Bannað fullorðnum / Fyrri ferð

Skemmtilegur leikur fyrir krakka í Gamla bænum Laufási. Krakkarnir gerast persóna úr sögu Laufáss og fara um bæinn til að leysa ýmis verkefni.

Viltu koma í skemmtilegan leik í Gamla bænum Laufási á Barnamenningarhátíð?

Laugardaginn 3. október verður boðið upp á skemmtilegan leik fyrir krakka í Gamla bænum Laufási. Krakkarnir gerast persóna úr sögu Laufáss og fara um bæinn til að leysa ýmis verkefni. Í ferðalaginu um bæinn hitta þau fyrir fólk að störfum og kynnast bænum og lífinu í honum fyrr á tíð á skemmtilegan hátt.
Bærinn verður aðeins ætlaður börnum en foreldragæsla verður í Gestastofunni þar sem boðið er upp á kaffi.

Undraferðirnar eru tvær laugardaginn 3. október, kl. 11 og 13 og einungis pláss fyrir 20 krakka í hvorum hóp fyrir sig á aldrinum 10-14 ára. Skráning fer fram á laufas@minjasafnid.is – þar þarf að koma fram nafn barns, aldur og sími forráðamanns.

Hvað þarftu?
• Hlý föt
• Myndvél eða myndavélasíma.
• Forvitni
• Muna að skrá sig


Viðburður á Facebook HÉR


Viðburðurinn er haldin í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri sem fer fram í október og nýtur stuðnings Akureyrarbæjar og Uppbyggingarsjóðs SSNE.

Hvenær
laugardagur, október 3
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Laufás Museum and heritage site, Laufás
Nánari upplýsingar

Enginn aðgangseyrir en skráning nauðsynleg.

Skráning: laufas@minjasafnid.is (nafn og aldur barnsins auk símanúmers forráðamanns)

Takmarkaður fjöldi: 20 börn