UngDans Akureyri sýnir valin brot úr nýju dansverki sem frumsýnt verður í Deiglunni 27. ágúst. Á Akureyrarvöku verða tvö ólík brot úr verkinu sýnd í miðbæ Akureyrar, kl. 16:00 og 19:45.
Verkið var skapað í ágúst undir listrænni stjórn danshöfundarins Ólafar Óskar Þorgeirsdóttur. Þetta er kraftmikið og líflegt verk þar sem húmor, groove og ólíkir karakterar fá að njóta sín. Verkið byggir á styrkleikum, tækni og reynslu dansaranna sjálfra.
UngDans Akureyri er nýr dansflokkur á vegum Danssetursins fyrir dansara á aldrinum 16–25 ára.
Sýning 1: kl. 16:00 á Ráðhústorgi
Sýning 2: kl. 19:45 í Göngugötunni
Verkefnið er styrkt af Akureyrarbæ.