Til baka

UngDans Akureyri á Akureyrarvöku

UngDans Akureyri á Akureyrarvöku

UngDans Akureyri sýnir brot úr nýjast og fyrsta verki flokksins.

UngDans Akureyri sýnir valin brot úr nýju dansverki sem frumsýnt verður í Deiglunni 27. ágúst. Á Akureyrarvöku verða tvö ólík brot úr verkinu sýnd í miðbæ Akureyrar, kl. 16:00 og 19:45.

Verkið var skapað í ágúst undir listrænni stjórn danshöfundarins Ólafar Óskar Þorgeirsdóttur. Þetta er kraftmikið og líflegt verk þar sem húmor, groove og ólíkir karakterar fá að njóta sín. Verkið byggir á styrkleikum, tækni og reynslu dansaranna sjálfra.

 

UngDans Akureyri er nýr dansflokkur á vegum Danssetursins fyrir dansara á aldrinum 16–25 ára.

 

Sýning 1: kl. 16:00 á Ráðhústorgi

Sýning 2: kl. 19:45 í Göngugötunni

 

Verkefnið er styrkt af Akureyrarbæ.

Hvenær
laugardagur, ágúst 29
Klukkan
19:45
Hvar
Göngugatan / Town Center
Verð
Opið öllum.