Til baka

Unread Fortunes - Sunneva Elvarsdóttir

Unread Fortunes - Sunneva Elvarsdóttir

Sunneva Elvarsdóttir opnar sýningu í Kaktus.
Sýningin opnar fimmtudaginn 5. júní kl. 19-22
Einnig verður opið:
Föstudag kl. 16-18
Laugardag kl. 14-17
Sunnudag kl. 14-17
 
Sunneva Elvarsdóttir (1993, NO/IS) fæddist á Íslandi og ólst upp í Tromsø í Noregi. Listsköpun hennar spannar mismunandi miðla, allt frá textíl og texta yfir í skúlptúra, teikningar og hljóðverk. Hún lauk MFA gráðu frá listaakademíunni í Tromsø og hefur áður stundað nám í skapandi skrifum í Bø, Telemark. Hún starfar einnig sem þýðandi.
 
Ólesnir Spádómar (2024)
Plöntulitun á silki, lífplast, 3D-prentað PLA, áli
Langamma mín var vön að spá fyrir gestum sínum með kaffibollaspá. Hún snéri bollunum á hvolf og lagði þá á ofninn svo kaffikorgurinn þornaði í mynstrum. Fyrirboðar þeirra, hvort sem þeir voru góðir eða slæmir, léttúðugir eða alvarlegir voru í mínum huga, skilgreindir sem einmitt þetta, viðvaranir um hvað gæti gerst ef ekkert annað breyttist. Þeir þjónuðu sem möguleiki til að breyta um stefnu.
Með því að klæða kunnuglega hluti í ólíkt efni vil ég endurtúlka þá og beina athyglinni að tíma og þróun.
Hvernig fléttast hugmyndir um örlög og framtíðarsýn inn í nútímann? Ef galdurinn felst í þeirri hugsun að hægt sé að breyta niðurstöðum, hugsum við þá eins um þær viðvaranir sem við fáum í dag um framtíðina?
 
Sýningin er styrkt af Statens Kunstnerstipend
Kaktus er styrktur af SSNE, Myndlistarsjóði og Menningarsjóði Akureyrar
Hvenær
laugardagur, júní 7
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Kaktus, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir