Uppistand á Vitanum
Uppistandið „Á þetta að vera fyndið?“ með heimamönnum snýr aftur - í þriðja sinn
Uppistandið „Á þetta að vera fyndið?“ með heimamönnum snýr aftur - í þriðja sinn!
Hópur heimafólks tekur hljóðnemann og býður gestum upp á kvöld þar sem við hlæjum saman að lífinu, hversdagsleikanum, samböndum, samfélaginu og öllu því sem verður aðeins bærilegra þegar maður má gera grín að því.
Í þetta sinn verðum við á Vitanum í samstarfi við Listasumar á Akureyri - húsið opnar kl 20:00 svo við mælum með að þið mætið tímanlega. Síðast var húsið fullt klukkutíma fyrir sýningu og færri komust að en vildu. Sýning hefst kl 21:00 og frítt er á viðburðinn í boði Listasumars og Akureyrarbæjar.
Á svið stíga:

Þórhallur Guðmundsson

Snæfríður Ingadóttir

Baddi Ingimarsson

Svava Björk Ólafsdóttir

Egill Bjarni Friðjónsson

Hannes Bjarni Hannesson
Kvöldið verður blanda af fersku uppistandi, persónulegum pælingum, vandræðalegum augnablikum og mögulega einhverjum sögum sem hefðu kannski átt að vera geymdar í lokuðum skúffum.
Komdu og vertu með okkur á Vitanum - styðjum heimafólk á sviði og hlæjum saman í leiðinni.
Á þetta að vera fyndið?
Við ætlum allavega að reyna.