Uppistand í Hofi
Uppistandshópurinn Heimamenn stígur nú á svið í Hömrum í Hofi á Akureyrarvöku
Á þetta að vera fyndið?
Heimamenn í Hofi
Uppistandshópurinn Heimamenn snýr aftur í fjórða sinn og stígur nú á svið í Hömrum í Hofi á Akureyrarvöku.
Áhorfendur mega búast við fjölbreyttu kvöldi með fersku uppistandi, persónulegum pælingum, hversdagslegum uppákomum og sögum úr lífinu. Við hlæjum saman að samböndunum, börnunum, samfélaginu og öllu því sem verður aðeins bærilegra þegar maður fær að gera grín að því.
Á svið stíga:

Snæfríður Ingadóttir

Egill Bjarni Friðjónsson

Hannes Bjarni Hannesson

Svava Björk Ólafsdóttir

Þórhallur Guðmundsson

Baddi Ingimarsson
Á síðasta uppistandi var troðfullt út úr dyrum og nú hlökkum við til að taka á móti enn fleirum í Hofi.
Húsið opnar kl. 20:00 og sýningin hefst kl. 21:00. Við mælum með að gestir mæti tímanlega. Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Komið og eigið skemmtilegt kvöld með okkur, styðjið heimafólk á sviðinu og njótið Akureyrarvöku.
Á þetta að vera fyndið?
Það kemur í ljós.
Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku og styrktur af Akureyrarbæ.