Við fögnuð útgáfu tveggja nýrra verka í Pastel ritröð:
nr 41 - Mars Baldurs: Hamingja
nr 42 - Hildur Eir Bolladóttir: Prestur fer á stefnumót
Mars og Hildur mæta til okkar í dagstofur Sigurhæða á Sumardaginn fyrsta, kynna Pastel verk sín. Tilvalið að njóta stundarinnar með þeim og fagna sumrinu um leið.
Enginn aðgangseyrir og öll velkomin. Te og kaffi í boði.
Pastelritin eru útlitshönnuð og sett upp fyrir prentun hjá Cave Canem hönnunarstofu og er prentun í umsjón Prentsmiðjunnar á Akureyri.
Gerð verka og viðburðir í Pastel ritröð eru samfjármögnuð af Uppbyggingasjóði Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Menningarsjóði Akureyrar, framlagi listamanna og Flóru menningarhúss.
Verk Mars og Hildar eru nú þegar komin í forsölu á www.pastel.is og verða send til áskrifenda fyrr en síðar. Frá byrjun maí verða verkin svo líka komin til sölu í safnbúð Listasafnsins á Akureyri og Listasafns Íslands, í Bók um bók og hjá Flóru menningarhúsi í Sigurhæðum.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!!