Til baka

Útgáfukvöldvaka - Í ísbúð/Radość życia

Útgáfukvöldvaka - Í ísbúð/Radość życia

Útgáfuhóf vegna nýju akureyrsku plötunnar Í ísbúð/Radość życia
VELKOMIN Á ÚTGÁFUKVÖLDVÖKU!
 
Ný akureyrsk plata kemur út laugardaginn 6. desember!
 
Það er platan Í ísbúð/Radość życia. Á henni er tónlist eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur. Flytjendur eru Corpo di Strumenti og (N)ICEGIRLS, nánar tiltekið Helena Guðlaug Bjarnadóttir, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Brice Sailly og Steinunn sjálf. Ljóð eru flest eftir Steinunni, en einnig eftir systkinin Mahaut Ingiríði og Ísólf Raymond Matharel. Julia Wakesho gerði ljóðaþýðinguna Mbarikiwe kijijini kwangu og Lidia Kołosowska var málfarsráðunautur pólsku. Kristján Edelstein annaðist upptökur og hljóðblöndun, en Haukur Pálmason hljóðjöfnun. Kristjana Katla Ragnarsdóttir hannaði umslag og bækling.
 
Af þessu tilefni - og í tilefni 44 ára skírnarafmælis tónskáldsins og 107. þjóðhátíðardags Finnlands - er ykkur boðið á útgáfukvöldvöku:
 
Laugardaginn 6. desember í Kaktus kl. 22-23
og hver veit nema verði hangsað lengur frameftir.
 
Léttar veitingar, tón- og ljóðdæmi og indæl þjóðhátíðar-skírnarafmælis-útgáfustemmning verða í boði.
Verið öll hjartanlega velkomin að fagna útgáfunni með okkur!
Hvenær
laugardagur, desember 6
Klukkan
22:00-23:00
Hvar
Kaktus
Verð
Ókeypis aðgangur - öll velkomin!