Til baka

Valkyrjur og önnur ævintýri

Valkyrjur og önnur ævintýri

Málverkasýning Helga Þórssonar opin: 29. & 30. apríl 14 - 17.

Helgi Þórsson í Kristnesi heldur málverkasýningu í Deiglunni Helgina 28-29 Apríl. Verkin á sýningunni eru olíumálverk, sum varla þornuð á striganum og önnur frá síðustu árum. Helgi hefur í gegnum tíðina haldið nokkrar sýningar og tekið þátt í samsýningum. En nú er langt síðan síðast svo það er kominn tími til. Opnun á laugardag kl 14 og opið til kl 17 og sami opnunnartími á sunnudag. Rétt er að geta þess að á laugardagskvöldið 28 er sérstök hátíð í Deiglunni þar sem gamlir Populus tremula félagar halda uppá lífið og fer vel á því að þessi málverkasýning skapi umgjörð um þann gjörning allann. Sjáumst Gamli Elgur.

Sýningin er opin helgina 29. og 30. apríl frá 14 – 17.

Hvenær
29. - 30. apríl
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Deiglan Gilfélagið, Kaupvangsstræti, Akureyri