Komdu með í vetrarhlaup þar sem stemmingin er í fyrirrúmi – þetta er fyrir alla, hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin eða vanur hlaupari! Við hittumst síðasta miðvikudag í mánuði kl. 17:30 við LYST í Lystigarðinum og tökum saman hlaup um Akureyri
Eftir hlaupið bíður þín heitt súkkulaði, fiskisúpa & brauð í boði ORKUSÖLUNNAR
📅 Næstu dagsetningar
28. janúar | 25. febrúar | 25. mars
💰 Þátttökugjald: 1.000 kr.
📍 Við LYST í Lystigarðinum
Styrktaraðilar: Orkusalan ⚡ | BE-KIND | Powerade 💧
Skráning fer fram á staðnum
——–
Hlaupaleið: Mæting á LYST í Lystigarðinum þar sem hlaupið er ræst til suðurs. Þið hlaupið suður út úr Lystigarði við SAK, beygið til hægriog hlaupið upp að Þórunnarstræti. Farið yfir gangbrautina á Þórunnarstræti, beygið til vinstri og hlaupið að og upp Mímisbraut, við Mýrarveg beygið þið til hægri og hlaupið út Mýrarveginn að Álfabyggð, við Álfabyggð beygið þið til hægri og haldið niður Álfabyggðina að Þórunnarstræti. Við Þórunnarstræti farið þið yfir gangbraut og inn á og MA-bílastæðið, hlaupið niður að og í gegnum Lystigarðinn og út um hann aftur við SAK þar sem þið beygið núna til vinstri, hlaupið niður bílastæðið við SAK áfram niður Eyrarlandsveg, meðfram Lystigarðinum, framhjá MA að Hrafnagilsstræti. Beygið þar til vinstri og farið upp Hrafnagilsstræti að Þórunnarstræti þar sem beygt er aftur til vinstri, hlaupið norður að bílastæði MA, beygið inn á bílastæðið og hlaupið inn í og í gegnum garðinn að LYST- kaffihúsi, þetta er 1 hringur.
HLAUPINU LÝKUR EFTIR 2 SVONA HRINGI.