Til baka

🏃‍♀️❄️ Vetrarhlaupasería LYST með UFA! # 5❄️🏃‍♂️

🏃‍♀️❄️ Vetrarhlaupasería LYST með UFA! # 5❄️🏃‍♂️

Vetrarhlaup LYST og UFA

Síðasta vetrarhlaupið hjá LYST! ❄️🏃‍♀️

Komdu með í síðasta hlaup vetrarins þar sem stemmingin er í fyrirrúmi – þetta er fyrir alla, hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin eða vanur hlaupari.

Við hittumst miðvikudaginn 25. mars kl. 17:30 við LYST í Lystigarðinum og tökum saman hlaup um Akureyri.

Að hlaupi loknu bíður góð stemning inni á LYST, þar sem boðið verður upp á
heitt súkkulaði, fiskisúpu og brauð í boði ORKUSÖLUNNAR.

Komdu og kláraðu veturinn með okkur 🏃‍♂️

📅 25. mars
🕔 17:30
💰 Þátttökugjald: 1.000 kr.
📍 Við LYST í Lystigarðinum

Styrktaraðilar:
Orkusalan ⚡ | BE-KIND | Powerade 💧 | Kjarnafæði | Hlaupar | Fætur toga

Skráning fer fram á staðnum

Hlaupaleið
Mæting í Lystigarðinn við LYST þar sem hlaupið er ræst til vesturs. Hlaupið upp stíginn til vesturs, farið út um grænt hlið og beygt þar strax til suðurs í átt að SAK. Farið er niður bílastæðið við SAK áfram niður Eyrarlandsveg, meðfram Lystigarðinum, framhjá MA að Hrafnagilsstræti. Þar er beygt til vinstri og farið upp Hrafnagilsstræti að Þórunnarstræti þar sem aftur er beygt er til vinstri. Hlaupið suður að göngustíg sem liggur meðfram heimavist MA/VMA, beygt til vinstri inn á hann, loks er tekin 90 gráðu beygja á göngustígum og þaðan hlaupið inn í og í gegnum garðinn að LYST- kaffihúsi. Og svo er hringurinn endurtekinn
😊

Hlaupinu lýkur eftir fimm hringi.
Hvenær
miðvikudagur, mars 25
Klukkan
17:30-19:00
Hvar
LYST
Verð
1000